útlendingar.
Herra forseti. Hv. þm. Helga Vala Helgadóttir kemur hér að kjarna málsins sem er auðvitað sá að þetta frumvarp breytir afskaplega litlu. Það leysir ekki þann vanda sem við höfum rætt og greint á um undanfarna daga og vikur, en er líklega heldur til bóta. Þess vegna geri ég nú ráð fyrir að styðja þetta frumvarp. Það var upphaflega kynnt sem mál sem væri til þess ætlað að auka skilvirkni og þá var ákveðið meginatriði að fólk sem hefði þegar fengið vernd annars staðar færi bara aftur á þann stað. Nú er þetta grundvallaratriðið dottið út. Í staðinn hangir þó inni ákvæði um að þegar búið er að synja einhverjum um vernd eða dvöl hér, þá fái viðkomandi aðeins stuðning í mánuð í viðbót. Ég hugsa að mörgum landsmönnum komi á óvart að það hafi yfir höfuð þurft að gera þessa breytingu, að þegar búið væri að synja fólki um dvalarleyfi hér þá þyrfti áfram að borga. (Forseti hringir.) En nú er miðað við mánuð, reyndar með alls konar fyrirvörum.