útlendingar.
Herra forseti. Það er rétt að ég vitnaði í ræður Mette Frederiksen, vinkonu minnar, en líka stefnu flokks hennar og stefnu ríkisstjórnarinnar. Jú, við getum litið til Noregs, þar er a.m.k. skárra fyrirkomulag en hér. Kannski er með þessu frumvarpi örlítið verið að reyna að fikra sig í þá átt en samt sést varla munur á niðurstöðunni. Ég myndi hins vegar frekar líta til Danmerkur og hv. þingmaður nefndi einmitt þá móttökustöð, flóttamannabúðir, hvað sem við viljum kalla það, sem við heimsóttum í Danmörku. En er það ekki það sem hæstv. dómsmálaráðherra hefur nefnt að við þurfum hér, og fengið bágt fyrir, verið sakaður um að ætla að setja fólk í fangelsi og þar fram eftir götunum? En í þessari móttökumiðstöð í Danmörku ríkti ákveðinn agi og við fengum t.d. að heyra það að símar væru teknir af fólki sem liður í því að kanna hver viðkomandi raunverulega væri og hvaðan hann væri að koma. Það hljómar kannski svolítið ískyggilega í eyrum okkar (Forseti hringir.) en Danir eru einfaldlega búnir að kynnast því að það þurfi raunsæi við það að taka takast á við þessi mál.