útlendingar.
Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Já, það var nákvæmlega þetta sem ég var að spyrja um, hvort þingmennirnir teldu að einhverjir væru réttari en aðrir, þ.e. einhverjir féllu betur undir þessa upprunalegu skilgreiningu. Það er athyglisvert vegna þess að dæmin sem voru tekin voru Úkraína, Venesúela og Sýrland en í öllum þessi löndum er vargöld og stríð og þau hafa verið skilgreind samkvæmt Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna sem lönd þar sem fólk er á flótta.
En mig langaði í seinni spurningunni að spyrja hv. þingmann, því hann og flokksbróðir hans tala mikið um forgangsröðun, um kríteríurnar eða skilyrðin sem hann vill hafa á því. Ég heyrði hv. þingmann nefna fólk sem vill vera hér lengi. Við gætum sagt að kannski sé það ekki skilyrði sem þau sem koma frá Úkraínu ná. Mig langar að vita, ef við höfum þessi skilyrði, hversu mörgum telur hv. þingmaður að við eigum að taka á móti og hvað gerum við ef við setjum ekki ákveðinn fjölda og það koma fleiri? Stoppum við bara og lokum landinu, lokum bara flugvellinum?