153. löggjafarþing — 22. fundur,  25. okt. 2022.

útlendingar.

382. mál
[20:42]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Já, þetta er skárra en ekkert. Það má auðvitað segja að þegar búið er að taka kærufrestinn af fólki, að það sé sjálfkrafa kæra, þá eykur það skilvirkni. Mér finnst það alveg magnað ákvæði í 2. gr. Að sjálfsögðu getum við rætt um 30 daga frestinn og svo 8. gr., þar finnst mér algjör grautur kominn upp. Að sjálfsögðu geta stjórnvöld alltaf tekið mál þegar mál tefst, það er bara þeirra ákvörðun. Nú eigum við báðir sæti í allsherjar- og menntamálanefnd. Telur hv. þingmaður að nefndin gæti komist að samkomulagi um frumvarp sem allir þingflokkar geta verið sammála um? Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, lýsti því yfir að hann teldi að stjórnmálaflokkar á þingi gætu haft samráð um þetta mál og komið í gegn frumvarpi sem við gætum öll staðið að og sómi væri að og komið þá á sátt í samfélaginu vonandi líka um málsmeðferðina, eins og er í Noregi, eins og er í Danmörku, a.m.k. meðal stóru flokkanna þar. Er ekki til mikils að vinna fyrir okkur að við afgreiðum þetta mál í sátt? (Forseti hringir.) Ég tel þetta litla frumvarp hafa ótrúlega lítil áhrif og skipta litlu máli um fjölgun hælisleitenda og er ekki bara kominn tími til að við vinnum að þessari sátt í nefndinni, við getum staðið saman eins og var gert 2016 eða 2017?