útlendingar.
Virðulegi forseti. Af því að hv. þingmaður, sem ég þakka kærlega fyrir sitt innlegg hér, kallar eftir því og veltir fyrir sér í mjög skemmtilegu máli hvað málflutningur minn eða orðalag í fjölmiðlum hafi nú akkúrat þýtt, þ.e. þegar ég segi að við samþykkjum að afgreiða málið frá okkur til þinglegrar meðferðar, þá þýðir það akkúrat það að við stöndum saman í þingsal og ræðum um málið sem við þurfum að gera í þremur umræðum með ferð inn í nefnd í millitíðinni. Það er nú akkúrat það sem það þýðir. Og bara af því að hér var líka kallað eftir þingmönnum Vinstri grænna í ræðu þá fagna ég því mjög að þingmaðurinn, sem hefur beðið í tæpa sjö tíma eftir að komast á mælendaskrá, er næst á mælendaskrá og það verður ánægjulegt að hlusta á ræðu hennar loksins þegar hún kemst að og í framhaldi af því aðrir þingmenn stjórnarliðsins.
Hv. þingmaður segist styðja frumvarpið og segir að það sé til bóta. Mig langar þá að spyrja hv. þingmann: Hvernig vill hann sjá það batna í þinglegri meðferð?