útlendingar.
Herra forseti. Ég veit ég er ekki í stöðu til þess en mig langar, af því að ég veit að hv. þingflokksformaður Vinstri grænna mun koma hér upp aftur, að biðja hann um að útskýra í hverju fyrirvarar þingmanna Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs hafi falist. Til að svara spurningunni: Ég tel að frumvarpið geti batnað með þeim hætti að hv. allsherjar- og menntamálanefnd fari í það verkefni að greina í hverju þessi séríslensku ákvæði felast, hvað þurfi að gera í löggjöfinni til að fjarlægja þau og nálgast það að regluverkið hér heima verði eins líkt og nokkur kostur er því sem það er í þeim löndum sem við berum okkur helst saman við. Ég held að það væri leiðin að því að bæta þetta mál. Mér sýnist á öllu að frá framlagningu síðastliðið vor og þar til núna hafi málið verið þynnt allnokkuð út og það hafði verið þynnt verulega frá því að það var fyrst lagt fram fyrir fjórum, fimm framlagningum síðan. En ég vona að þetta svari spurningu hv. þingmanns.