153. löggjafarþing — 22. fundur,  25. okt. 2022.

útlendingar.

382. mál
[21:32]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Mig langar að spyrja hv. þm. Jóhann Friðrik Friðriksson hvað í þessu frumvarpi hann telur að muni tryggja að sveitarfélög geti sinnt betur hlutverki sínu eða taka á móti fólki og búa því sómasamleg skilyrði, íslenskukennslu og annars konar utanumhald. Hvað í þessu frumvarpi kemur til móts við þær áskoranir sem við erum að fást við núna í íslensku samfélagi með fordæmalausum fjölda fólks á flótta í heiminum og fordæmalausum fjölda umsækjenda á Íslandi, sem vonandi er tímabundið, en maður veit það auðvitað aldrei? Hvað er það í þessu frumvarpi sem hann styður svo mjög?