153. löggjafarþing — 22. fundur,  25. okt. 2022.

útlendingar.

382. mál
[21:35]
Horfa

Jóhann Friðrik Friðriksson (F) (andsvar):

Ég þakka hv. þingmanni fyrir. Ég verð að segja að allar tilraunir til að stytta málsmeðferðartíma held ég að séu af hinu góða. Hérna er til að mynda sérstaklega litið til málsmeðferðartíma barna, ég held að ég sé að fara rétt með það. Ég held að það sé mjög mikilvægt fyrir okkur að horfa til þess. Það er alveg rétt hjá þingmanninum að hún hefur verið verulega reynslu af málaflokknum út frá lögfræðilegu sjónarmiði og ég er alveg sannfærður um að við munum taka þessa umræðu í nefndinni.