153. löggjafarþing — 22. fundur,  25. okt. 2022.

útlendingar.

382. mál
[21:45]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Skref í rétta átt. Vissulega má finna þarna ákveðin skref í rétta átt en það eru algjör hænufet að mínu viti, raunverulega ekkert sem skiptir máli í stóru myndinni. Það munu enn aukast stórkostlega umsóknir um hæli hér á Íslandi og málsmeðferðin mun þyngjast. Það er alveg augljóst mál. Íslenska stjórnkerfið á erfitt með að ráða við þetta.

Það sem er líka undir í þessu er að í ár eru komnar 3.342 umsóknir. Það er mjög líklegt að þær fari í 3.850. Það er 1% af Íslendingum og það er stór tala ef við skoðum þetta í stóra samhenginu. Ég get bara ekki séð að þetta skref, þetta frumvarp sem er búið að leggja fram í sjötta sinn, hafi nokkur einustu áhrif. Það mun koma annað frumvarp. Það verður krafa um það í samfélaginu að það komi annað frumvarp sem mun taka á þeim raunverulega vanda sem er hinn gríðarlegi fjöldi, (Forseti hringir.) svo að það liggi fyrir.

Annað varðandi Venesúela, (Forseti hringir.) 720 manns þaðan eru að koma til landsins, (Forseti hringir.) margir jafnvel frá Spáni. Telur hv. þingmaður ekki rétt að fara að skoða fjöldann og hvaðan þeir eru að koma?