útlendingar.
Virðulegur forseti. Það er nú gott að við höfum alla vega einn þingmann í salnum sem hefur lesið frumvarpið því við hin öll hljótum ekki að hafa lesið þetta frumvarp. Hv. þingmaður talar með þeim hætti að við hin vitum greinilega ekkert hvað við erum að tala um eða hvað stendur í þessu frumvarpi. En hv. þingmaður talar um að þetta frumvarp geri ekkert gagn og sé ekki til að leysa nein mál. Ég virði þekkingu hv. þingmanns og fyrri störf hennar en það er nú samt þannig að embættismenn sem vinna við þetta, stofnanir sem vinna við þessi mál, hafa komið með ábendingar um þörf á betrumbótum á regluverkinu. Hv. þingmaður er þá ósammála öllum hinum sérfræðingunum sem hafa bent á þessa þörf. Ég held að það sé mikilvægt að taka það fram. Það er greinilega ekki einn sérfræðingur hérna sem hefur rétt fyrir sér í öllum málum.
Hv. þingmaður fer svolítið víða yfir og ég mun ekki geta spurt hana út í allt því tíminn líður hratt. 30 daga reglan, byrjum þar. Hér eru alveg tilgreindar undanþágurnar gagnvart henni. Ég spyr: Er hv. þingmaður með öðrum orðum að segja að allt kerfið sem við höfum byggt upp, það að Útlendingastofnun segi nei vegna þess að viðkomandi fellur ekki undir skilgreininguna (Forseti hringir.) um að fá vernd og kærunefndin tekur undir það, skipti í rauninni engu máli? (Forseti hringir.) Ef fólk á hvort sem er að fá að geta dvalið á landinu þrátt fyrir hafa fengið synjun á tveimur stjórnsýslustigum, skiptir þá kerfið yfir höfuð nokkru máli?