útlendingar.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Varðandi það að það séu sérfræðingar sem séu ósammála þeim sérfræðingi sem hér stendur um hvort þessar breytingar þurfi að gera á lögunum eða ekki þá vil ég vekja athygli á því að allar þessar breytingar eru pólitískar, þetta eru pólitískar ákvarðanir, þetta eru ekki tillögur sem koma frá sérfræðingum Útlendingastofnunar sem sjá formlega vankanta á lögunum. Þetta eru pólitískar tillögur sem koma úr ráðuneytinu, væntanlega eftir samtöl við sérfræðinga. Þetta er það sem pólitíkin telur að muni leysa vandann vegna þess, sem ég hef bent hér á, að það virðist vera ósögð stefna íslenskra stjórnvalda að veita sem allra fæstum vernd hér á landi. Það er það sem liggur þarna að baki, ekki einhver sérfræðikunnátta og að þetta séu einhverjar praktískar breytingar sem verði að gera til þess að kerfið geti virkað.
Ég ætla að svara spurningu hv. þingmanns varðandi það hvort ég telji að kerfið skipti engu máli og þess vegna eigi bara að vera í lagi að svipta fólk þjónustu: (Forseti hringir.) Nei, það er ekki það sem ég er að segja. Ég er að segja að jafnvel ríki á borð við Danmörku, sem er þekkt fyrir að vera með eina hörðustu stefnuna í málefnum flóttafólks í Evrópu, (Forseti hringir.) jafnvel dönskum stjórnvöldum dettur ekki í hug að svipta fólk þjónustu þó að það sé búið að fá nei.