útlendingar.
Frú forseti. Já, ég held að það sé svo sem ekki opinber stefna Pírata en það er algerlega mín skoðun að þetta frumvarp eigi heima í kuðli í ruslakörfu, sannarlega. Það er ekki vegna þess að ég vilji ekki gera neinar breytingar á útlendingalögum eða ég vilji ekki leysa þau vandamál sem við stöndum frammi fyrir heldur vegna þess að þetta frumvarp gerir það ekki. Við erum öll sammála um vandamálin sem við stöndum frammi fyrir og þau snúast um getu innviða á Íslandi til að taka á móti þeim fjölda fólks sem hingað leitar í raunverulegri neyð. Það að fólk sé að leita hingað sem er ekki í raunverulegri neyð er ekki teljandi vandamál. Það fengum við staðfest í samtölum við Útlendingastofnun í dag að mínu mati og kom mér nokkuð á óvart, ég verð nú bara að játa það. Já, mér finnst þetta frumvarp eiga heima í ruslakörfunni. En ég er sannarlega til í umræðu um þetta frumvarp og við munum taka þá umræðu. Ég mun sýna fram á það að þessar breytingar og tillögur eru gagnslausar í því að ná nokkrum þeim markmiðum sem ég myndi vilja stefna að í útlendingastefnu á Íslandi. Og ég er sannfærð um að þetta sé gagnslaust líka til að ná þeim markmiðum sem hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir stefnir að. Ég mun sýna fram á það.