útlendingar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir áhugaverða ræðu. Aðeins vegna orðanna hér áðan í andsvörum við hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur: Hún talaði um raunverulega neyð. Það er ekki í lögunum og í skilgreiningunni á flóttamanni, það er ekki skylda Íslands að taka á móti fólki í raunverulegri neyð. Skilyrðið er þetta: Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst útlendingur sem er utan heimalandsins af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar o.s.frv. Það er ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur, það er skilyrði fyrir því að vera flóttamaður. Það eru 8 milljarðar manna á jörðinni og milljarðar fólks eru í neyð. Það er þessi ástæðuríki ótti, það er skilyrðið. Það er það skilyrði sem mér er mjög umhugað um, þ.e. að við tökum utan um fólk sem uppfyllir það skilyrði, svo að það liggi fyrir.
Mig langar að spyrja hv. þingmann: Nú segir í frumvarpinu að þetta frumvarp sé til að samræma löggjöf við það sem gerist á Norðurlöndunum. Finnst hv. þingmanni 8. gr. vera að gera það með þeim sérreglum sem eru í henni, varðandi það ef þú fengir vernd í öðru ríki og líka varðandi 12 mánaða regluna?