153. löggjafarþing — 22. fundur,  25. okt. 2022.

útlendingar.

382. mál
[22:31]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Ég segi nú bara eins og hv. þm. Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir: Það er engin opinber stefna Pírata að vera á móti þessu frumvarpi. En ég deili þeirri skoðun hennar að það ætti best heima í ruslatunnunni, svo yfirgengilega slæmt er það að eiginlega öllu leyti. Þó eru þarna ákvæði, aftast í frumvarpstextanum, sem eru ágæt og snúa að dvalarleyfum. Þau ákvæði voru reyndar felld hér í þingsal þegar þau voru lögð fram sem breytingartillaga. Þá þótti stjórnarliðum ekki hafa verið rætt nógu mikið um þau við 1. umr. Þess vegna væri svo gráupplagt fyrir ráðherrann sem ber ábyrgð á þeim málaflokki í ríkisstjórninni, hæstv. félagsmálaráðherra, að mæta í þingsal og ræða þessi ákvæði sérstaklega. Það dugir ekki að dómsmálaráðherra fullvissi okkur um að þeir hafi átt samráð um þessi ákvæði og það sé fullur samhugur á milli þeirra. Nei, við þurfum að heyra það frá hæstv. ráðherra, Guðmundi Inga Guðbrandssyni. Það dugir nefnilega ekkert fyrir ráðherra að vera bara með yfirlýsingar í fjölmiðlum. (Forseti hringir.) Þingsalurinn er staðurinn þar sem hann á að standa reikningsskap gjörða sinna. (Forseti hringir.) Hér er málstofa lýðræðisins, ekki á síðum dagblaðanna. (Forseti hringir.) Ég vil bara benda virðulegum forseta á að það er stutt eftir af þessum þingfundi (Forseti hringir.) og okkur var sagt að ráðherra væri á leið úr landi á morgun (Forseti hringir.) og síðan verður hann ekki sjáanlegur fyrr en í fyrsta lagi 7. nóvember. (Forseti hringir.) Er ekki best að hann fari að líta við?

(Forseti (JSkúl): Forseti minnir á að ræðutími undir fundarstjórn forseta er ein mínúta, ekki rúmlega ein og hálf.)