útlendingar.
Frú forseti. Það er ekki það sama að eiga orðastað við ráðherra á lokuðum fundi fastanefnda Alþingis og að eiga orðastað við ráðherra hér í þingsal. Það sem á sér stað hér í þingsal fer í þingbækur og er lögskýringargagn sem hægt er að styðjast við seinna varðandi það um hvað málið snýst og hvernig beri að túlka það, hvernig ber að skilja og túlka lagaákvæði sem fjallað er um og hefur oft verið vísað í slíkt í dómsmálum. Þetta skiptir máli og þess vegna er það algjörlega allt annað mál að fá hæstv. ráðherra á fund fastanefndar. Auðvitað gerum við það en það er bara allt annar hlutur. Við óskuðum eftir því í dag að málinu yrði frestað enda er ekki slíkur urmull af stjórnarmálum hér að það séu einhver vandræði uppi, þvert á móti (Forseti hringir.) halda þingmannamál uppi dagskránni hérna dag eftir dag og munu gera út vikuna. Það er eitt pínulítið stjórnarmál á dagskrá (Forseti hringir.) alla þessa viku, eitthvert málamyndafrumvarp frá hæstv. fjármálaráðherra, þannig að það er ótrúlegt og óskiljanlegt að málinu hafi ekki verið frestað.