153. löggjafarþing — 22. fundur,  25. okt. 2022.

útlendingar.

382. mál
[22:47]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Hér komum við upp, ég er búinn að missa töluna á því hversu oft, til að hvetja hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra til að koma hingað og ræða þetta við okkur. Í hvert einasta skipti höfum við einnig bent á það að við séum tilbúin að fresta umræðu um þetta mál þangað til ráðherra hefur möguleika á því að koma. Ekkert af þessu hefur verið tekið gilt og sífellt verið sagt: Það er hægt að kalla hæstv. ráðherra á nefndarfund, en eins og vel hefur verið sýnt fram á hér af öðrum hv. þingmönnum þá er það bara ekki það sama að hafa einhvern á lokuðum nefndarfundi eins og að tala í þingsal Alþingis. Annað er lögskýringargagn, hitt er samtal sem hvergi er skráð.