153. löggjafarþing — 22. fundur,  25. okt. 2022.

útlendingar.

382. mál
[23:19]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir ræðuna og hennar yfirferð hér í dag. Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins afgreiddi frumvarp hæstv. dómsmálaráðherra út með fyrirvara. Þar sem hv. þingmaður er eini Sjálfstæðismaðurinn sem hefur verið í ræðu í kvöld þá langar mig einfaldlega að óska eftir því að hv. þingmaður geri þingheimi grein fyrir fyrirvaranum sem var gerður á frumvarpinu.