Bráðabirgðaútgáfa.
153. löggjafarþing — 23. fundur,  26. okt. 2022.

Frestun á skriflegum svörum.

[15:02]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Forseta hefur borist bréf frá forsætisráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 245, um ferðakostnað og dagpeninga ráðherra, frá Birni Leví Gunnarssyni. Einnig hefur borist bréf frá utanríkisráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 263, um þvingunaraðgerðir gegn alvarlegum mannréttindabrotum, frá Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur.