einföldun regluverks vegna vindorkuvera.
Herra forseti. Á fundi atvinnuveganefndar í síðustu viku fór hæstv. ráðherra, Guðlaugur Þór Þórðarson, yfir þingmálaskrá sína fyrir veturinn og kynnti þar m.a. fyrirhugað frumvarp til laga um vindorku þar sem ætlunin er að einfalda kerfið varðandi uppbyggingu vindorkuvera — einfalda regluverkið. Eins og þekkt er eftir afgreiðslu Alþingis á rammanum svokallaða síðastliðið vor þurfa ákvarðanir er varða uppbyggingu á vindorku nú að fara í gegnum rammann. Mig langar til að fá staðfestingu hjá hæstv. ráðherra á því sem ég spurði að á fundinum, hvort þegar þetta frumvarp um vindorkuna verður að lögum þá fari vindorkan, svo að ég einfaldi málið, frá rammanum og yfir í þetta nýja regluverk. Mig langar til að fá staðfestingu á því og hvort einhugur sé í ríkisstjórninni um að það verði hin nýja birtingarmynd.
Síðan í framhaldinu er það þá svo að með því að fara út úr rammanum þá verði það ekki þingið sem taki afstöðu til einstakra framkvæmda heldur verði sú ákvörðun þá mögulega, ef maður sér hvernig þetta gæti litið út, á hendi einstakra sveitarfélaga? Mig langar til að fá ráðherra til að útskýra hver hugmyndin er á bak við framkvæmdina, ákvörðunartökuferlið, í þessu lagi. Það er ákveðin hætta á því að þetta vindorkumál verði ekki að lögum í vetur ef það kemur ekki fram fyrr en í mars. Næsta vetur þá mögulega. Við vitum af því að fjölmargir aðilar eru farnir af stað með fínar hugmyndir um uppbyggingu vindorkuvera. Við vitum líka af því að ef við ætlum að láta verða af orkuskiptum og keyra á þessi mál sem búið er að gefa loforð um þá þarf (Forseti hringir.) að framleiða orku og þetta er vænlegur kostur. Ég hefði áhuga á að heyra nákvæmlega hver hugsunin er með þetta og samspil þessara nýju laga við rammann og ákvörðunartökuferlið.