einföldun regluverks vegna vindorkuvera.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Hún er svolítið umfangsmikil en ég fagna henni vegna þess að það er afskaplega mikilvægt að ræða þessi mál. Þó svo að frumvarpið sé ekki komið fram í þinginu þá held ég að það sé mjög gott að við veltum þessu upp og ræðum þessi mál. Hv. þingmaður vísaði réttilega til þess að þetta er stórmál, vísaði sömuleiðis til þess að við þurfum að minnka losun um 1,3 milljónir tonna af CO2 fyrir 2030. Það er ekki gert nema við fáum græna orku. Eins og kom fram í máli hv. þingmanns þá eru vindorkulundirnir, það sem fer fyrir ofan 10 MW, í rammanum. Það segir í stjórnarsáttmálanum að það eigi að taka þessi mál sérstaklega fyrir. Það sem er í gangi er þetta: Það eru þrír hópar, einn er að skoða og bera saman regluverkið milli Noregs, Danmerkur, Skotlands og Nýja-Sjálands og skoðar það líka á fleiri stöðum. Það er einfaldlega vegna þess að þessar þjóðir og flestar aðrar eru komnar langt fram úr okkur hvað þetta varðar og það er gott fyrir okkur að hafa þessar upplýsingar þegar við erum að bera saman mismunandi valkosti. Annar hópurinn er að skoða sjóinn, hvaða hafsvæði komi til greina fyrir vindorkuver, ekki til að ákveða það heldur bara til að skoða hvað við getum alls ekki notað sökum fuglalífs, siglingaleiða o.s.frv. Svo er þriðji hópurinn, sem á að skila eftir áramót, sem á að koma með tillögu um hvernig best er fyrir okkur að haga þessum málum. Hann er náttúrlega að störfum vegna þess að hann á að koma með tillögur. Þannig að það á eftir að taka afstöðu til flestra þeirra spurninga sem hv. þingmaður vísaði til. En það liggur hins vegar fyrir að það er mjög erfitt að sjá að við náum loftslagsmarkmiðum okkar nema að nýta vindinn með einhverjum hætti. (Forseti hringir.) En það er alls ekki sama hvernig það er gert og það þarf að ræða það mjög vel.