einföldun regluverks vegna vindorkuvera.
Forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið og hann leiðréttir mig þá ef túlkun mín er röng en hún er sú að það liggur ekki fyrir ákvörðun um að vindorkan fari út úr rammaáætlun þegar nýju lögin koma, bara til þess að skilja þetta. Það er jú gott að við erum að bera okkur saman við önnur lönd en við höfum jú hérna ákveðna sérstöðu þannig að án þess að ég sé að leggja mat á hvor staðan sé rétt þá skiptir máli að þetta sé eins skýrt og hægt er að vera.
Mig langar að fara yfir í auðlindagjaldið. Það liggur auðvitað fyrir að vindorkan sem slík er ekki hefðbundið auðlindaverkefni. Það þyrfti þá að skilgreina hvað það er sem á að skattleggja. Eru það takmörkuð gæði eða takmörkuð leyfi? Hvenær ákveðum við hversu mörg leyfi eru? Hver takmarkar það? En að sama skapi held ég að við getum öll verið sammála um einhvers konar gjaldtöku ef á að mynda sátt í samfélaginu um þessi mál. Við þekkjum verkefni sem byggja á náttúruauðlindum þar sem ekki var frá upphafi hugað að þessu, það hefur kostað sitt í samfélaginu. Mig langar til að heyra hvað hæstv. ráðherra hefur í huga (Forseti hringir.) ef sú leið verður farin sem stundum hefur verið rædd, um að greiða gjald — uppbyggingargjald, aðstöðugjald eða hvað það er kallað — til sveitarfélaga. Er vænlegt að gera það áður en málið sem ríkisstjórnin hefur haft í fangi sínu í fimm ár núna varðandi sameiningu sveitarfélaga er klárað?