153. löggjafarþing — 23. fundur,  26. okt. 2022.

einföldun regluverks vegna vindorkuvera.

[15:09]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Ég þakka hv. þingmanni aftur fyrir og kannski aðeins varðandi rammann að innan sem utan. Við erum í kyrrstöðunni núna, sem betur fer, og við kláruðum rammann, í rauninni ekki bara 3. áfanga heldur 4. áfanga líka, með einföldunarlagafrumvarpi núna í vor. Það var níu ára kyrrstaða. Ráðherra á að koma með þetta á fjögurra ára fresti. Nema eitthvað stórkostlegt breytist er erfitt að sjá að við einföldum regluverkið ef við höldum þessu innan rammans. Þetta er auðvitað eitthvað sem við ræðum. En það segir sig sjálft að þá erum við komin í vanda, ef við höldum áfram eins og við höfum gert fram til þessa.

Síðan varðandi skattlagningu þá er mín skoðun alveg skýr að það er mjög mikilvægt að nágrannar vindmyllanna fái að njóta þess efnahagslega. Það eru margar leiðir til þess og auðvitað er það ekki þannig að við séum þau einu í heiminum sem erum að skoða þessi mál eða erum með lög um þessi mál og reglur um þessi mál. Þetta er eitt af því sem hópur undir forystu Hilmars Gunnlaugssonar er að skoða; það eru leyfisveitingar, það er gjaldtaka og annað slíkt. (Forseti hringir.) En mín afstaða er mjög skýr: (Forseti hringir.) Það væri mjög skrýtið ef þeir sem eru í nágrenni vindmylla, og svo getum við deilt um hvort það þurfi að vera einhver lágmarksfjöldi eða hvað það er, það er allt annað mál, (Forseti hringir.) fengju ekki að njóta þess efnahagslega.