ríkisábyrgð ÍL-sjóðs.
Virðulegi forseti. Það var dálítið erfitt fyrir mig áðan að vekja sérstaklega athygli á því að mér þættu orð annars hv. þingmanns bera þess vitni að hún skildi ekki lögfræðina í þessu máli en mér þykir það jafnvel enn erfiðara þegar ég er að tala við lögfræðing, virðulegi forseti, sem fer með hverja rangfærsluna á eftir annarri. Að láta sem svo að ÍL-sjóður sé bara ígildi hvaða ríkisstofnana sem er, að láta sem svo að gangi ríkið ekki bara í ábyrgð fyrir öllum skuldbindingum sjóðsins eins og fyrir hvern annan ríkisaðila þá myndi það jafngilda því að við stæðum ekki með ríkisstofnunum — það er býsna alvarlegt ef menn eru á þessum stað í upphafi þessarar umræðu. Þetta er algerlega fráleit nálgun. Ég ætla að biðja hv. þingmann að spyrja sig að því hvers vegna þurfti að gefa ríkisábyrgð ef þetta var hvort eð er allt á ríkisreikning. Erum við með útistandandi ríkisábyrgð fyrir Landspítalann eða aðra ríkisaðila? Auðvitað ekki. Auðvitað er ríkisábyrgðin til staðar vegna þess að sjóðurinn stendur sjálfstætt, er stofnaður með lögum sem sjálfstæður aðili og fékk heimildir að lögum til þess að fjármagna sig með tilteknum hætti. Þess vegna var ríkisábyrgðin gefin út samkvæmt sjálfstæðri heimild og þess vegna skipti öllu máli að það stæði skýrt skilgreint hvers eðlis ríkisábyrgðin er, nefnilega þetta hér; einföld ríkisábyrgð. Ef aðalskuldari getur ekki greitt þá kemur ríkisábyrgðin kröfuhafanum til varnar og hann getur fengið fullt uppgjör. Og það er alltaf verið að tala um það hér. Spurningin er bara þessi: Trúa menn því í alvörunni að þetta hafi allt verið að óþörfu gert, allt þetta umstang, ríkisábyrgðin og allt það, allt saman á misskilningi byggt? Vegna þess að hv. þingmaður heldur, eins og kannski sumir, að þetta sé bara eins og hver annar ríkisaðili sem við ræðum hér. Trúa menn þessu í alvöru? (Forseti hringir.) Eða eru menn ekki byrjaðir að lesa skýrsluna sem ég lagði fyrir þingið í síðustu viku?