153. löggjafarþing — 23. fundur,  26. okt. 2022.

ríkisábyrgð ÍL-sjóðs.

[15:23]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Íbúðalánasjóður sem var lagður niður með lögunum bar skuldbindingar. Þær voru teknar yfir af ÍL-sjóði, sem er vissulega ríkisaðili en um hann gilda sérstök lög, og fáránlegt — afsakið, forseti, en ég verð að taka svolítið djúpt í árinni hér — að líkja ríkisaðila sem þessum, sem komið er á fót með sérstökum lögum, við hverja aðra ríkisstofnun. Þeir sem hugsa málið svona þurfa aðeins að velta fyrir sér hvers vegna þetta var ekki bara allt gert með útgáfu ríkisskuldabréfa á sínum tíma. Það var ekki. Hvers vegna var umræða árið 2004 um að hér væri verið að stofna til áhættu til framtíðar? Af því að það skiptir máli vegna þess að það reynir mögulega á ríkisábyrgðina einn góðan veðurdag og þá þarf ríkissjóður að hlaupa undir bagga. Og það er rangt hjá hv. þingmanni að útilokað sé að taka ríkisaðila eins og ÍL-sjóð til slita. (Forseti hringir.) Það er hægt að gera með sérstakri löggjöf. Það horfir ekkert sérstaklega björgulega (Forseti hringir.) ef hver þingmaðurinn eftir annan ætlar að fórna hagsmunum framtíðarkynslóða til að róa fjármálamarkaðina, burt séð frá öllum skilmálum (Forseti hringir.) sem gefnir voru út á sínum tíma.

(Forseti (BÁ): Forseti minnir bæði hv. fyrirspyrjendur og hæstv. ráðherra á að virða ræðutímann sem er tvær mínútur í fyrri umferð og ein mínúta í síðari umferð í hverri fyrirspurn.)