samstarf við bændur vegna sameiningar Landgræðslunnar og Skógræktarinnar.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Það er rétt sem kemur fram í máli þingmannsins að nú er komið í raun og veru að þeim punkti að við höfum gert grein fyrir áformum um lagasetningu sem nú eru í samráðsgátt.
Hv. þingmaður spyr sérstaklega um aðkomu bænda að forathugun og undirbúningi. Forathugunin fól í raun og veru í sér að greina reksturinn faglega, samlegð og áhættugreiningu sem gert var í samráði við stofnanirnar en ekki síður í samráði við ýmsa þá sem hafa verið í samstarfi við stofnanirnar. Þar má nefna Bændasamtök Íslands, Samband íslenskra sveitarfélaga, Skógræktarfélagið, Landvernd og tiltekin sveitarfélög, Rangárþing og Múlaþing get ég nefnt. Þar komu fram ýmis sjónarmið, m.a. að ekki megi draga úr svæðisbundinni þekkingu og tengslum inn á ákveðin svæði. Fólk benti á að það væri skortur á heildarsýn og það var vilji til þess að auka rannsóknasamstarf. Þessi sameining, sem myndi þá í raun og veru byggjast á ákvörðun Alþingis — þar myndi auðvitað samstarf og samráð vera við alla hlutaðeigandi. En í nýrri stefnu og aðgerðaáætlun um landgræðslu og skógrækt, sem var samþætt, er kveðið sérstaklega á um aukið samstarf við landeigendur og sveitarfélög um stefnumörkun og aðgerðir. Meðal annars er gert ráð fyrir að stuðningskerfi fyrir landeigendur og félagasamtök verði skoðuð heildstætt með hliðsjón af stefnumörkuninni og hagsmunaaðilar þurfi að koma að því samtali og þar verði unnar sérstakar svæðis- og landshlutaáætlanir í samstarfi við heimaaðila þar sem skerpt verður á forgangsröðun aðgerða. Þannig að hér eftir sem hingað til leggjum við mjög mikla áherslu á aðkomu heimamanna að þessum brýnu verkefnum.