153. löggjafarþing — 23. fundur,  26. okt. 2022.

samstarf við bændur vegna sameiningar Landgræðslunnar og Skógræktarinnar.

[15:37]
Horfa

Líneik Anna Sævarsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svörin sem voru mjög mikilvæg. En einmitt í þessari vinnu sem hefur farið fram undanfarið þar sem hefur orðið mjög mikil breyting á umgjörð stofnananna, Skógræktarinnar og Landgræðslu, með lagabreytingum, með breytingunni 2016 og svo í vinnunni við landsáætlanirnar og aðgerðaáætlanirnar, þá hefur held ég dálítið mikið af orku stofnananna beinst að þeirri vinnu á kostnað þessa daglega samstarfs við bændur og landeigendur. Þess vegna álít ég að núna sé einmitt mjög góður tímapunktur, í aðdraganda lagasetningarinnar, til að beina sjónum að ávinningi af virku samstarfi nýrrar stofnunar og bænda og greina hvaða leiðir tryggi sem skilvirkast samstarf, eins hæstv. ráðherra kom inn á, samstarf sem tryggir árangur, hagkvæmni, skilvirkni og nýsköpun. Er ekki einmitt tækifæri núna, hæstv. ráðherra, til að leggjast yfir þetta með áherslu á mótun umgjarðar innan landshluta og á landsvísu?