153. löggjafarþing — 23. fundur,  26. okt. 2022.

samstarf við bændur vegna sameiningar Landgræðslunnar og Skógræktarinnar.

[15:38]
Horfa

matvælaráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Það er auðvitað mjög mikilvægt að við leggjum aukna áherslu á heildstæða ráðgjöf til landeigenda og þátttökunálgun almennt í verkefnum sem gerir þá kröfu að við séum með meiri staðbundna nálgun við þau verkefni sem eru undir. Ég er sammála hv. þingmanni um að það þarf að formgera þetta samstarf til að tryggja því það súrefni sem þarf en um leið þurfum við að átta okkur á því að losunarbókhald Íslands fyrir landnotkun gerir kröfu um mjög sérhæfða þekkingu og kröfur um gæði og samhæfða miðlun, bæði út í landshlutana og til almennings og auðvitað stjórnvalda í því samhengi. Það er að byggjast upp þekking á sviði vottunar kolefniseininga í ýmsum landnýtingarverkefnum sem er mjög sérhæfð, en um leið er mjög mikilvægt að þessir samhæfðu mælikvarðar verði á allra valdi í raun og veru, að við áttum okkur öll á því, bæði landeigendur og stjórnvöld og þessar mikilvægu stofnanir og svo sameinuð stofnun, um hvað málið snýst.