153. löggjafarþing — 23. fundur,  26. okt. 2022.

framsetning fjárlaga.

[15:42]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég lít nú bara þannig á að samningurinn sé með þessum fyrirvara og fyrirvarinn er síðan virkjaður. Ef samningurinn hefði verið án fyrirvara hefði verið hægt að láta reyna á hann og krefjast þess að ríkið myndi standa við það sem gengið var út frá. En þó að ég hafi nú borið ábyrgð á framlagningu tíu frumvarpa um fjárlög, eitthvað svoleiðis, þá er það samt sem áður á endanum þannig að þingið verður að höggva á hnútinn. Ég get bara sagt um þetta að ég held að það sé óheppilegt að þetta sé gert svona. Ég held að það sé óheppilegt að skrifa í samninga um mögulegar verðbætur sem ekki stendur til að hafa. En það leiðir þá til þess að t.d. sveitarfélögin í þessu tilviki eru núna uppi með kröfu um að ríkið komi með einskiptisgreiðslu til þess að bæta í raun og veru upp fyrir óverðtryggðan samning allan þennan tíma og þá væri hægt að gera það í einu uppgjöri ef menn vildu gera það.