153. löggjafarþing — 23. fundur,  26. okt. 2022.

ÍL-sjóður.

357. mál
[16:11]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég bar málið upp stuttlega í fjármálastöðugleikaráði í sömu viku og ég hafði kynnt það í ríkisstjórn. En það verður að hafa það í huga að það mun ekkert ákveðið gerast í málinu fyrr en Alþingi tekur af skarið. Það sem ég var fyrst og fremst að gera hér í síðustu viku var að opinbera skýrsluna, leggja hana fram, lýsa mínum sjónarmiðum um hvaða valkosti við höfum, hefja samtal við kröfuhafana og lýsa þeirri skoðun minni, sem ég get aldrei verið einráður um, að það verði að grípa til aðgerða. Valkostirnir við að grípa til aðgerða eru í mínum huga þeir að hefja inngreiðslur í sjóðinn og taka þannig á herðar sjálfskuldarábyrgð á ÍL-sjóði. Það er alveg rétt að ÍL-sjóður er enginn venjulegur aðili úti í bæ, en þetta er opinber aðili sem sérstök lög gilda um og sérstakir skilmálar gilda líka um skuldbindingar hans samkvæmt þeim pappírum sem gefnir voru út. Það finnst mér vera mikið grundvallaratriði.