153. löggjafarþing — 23. fundur,  26. okt. 2022.

ÍL-sjóður.

357. mál
[16:13]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er mjög óviðeigandi að vera að gera einhverja samlíkingu við fjármálahrunið og fall bankanna. (Gripið fram í.) Það er hins vegar þannig að fyrir dómstóla hafa ratað lögfræðileg álitamál, eins og t.d. átti við þegar Alþingi ákvað að grípa inn í um fjármálagerninga með þeim hætti að veita innstæðum í bönkunum forgang fram fyrir skuldabréfaeigendur. Þá reyndi m.a. á eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar og þau álitamál rötuðu alla leið til Hæstaréttar. Þegar Hæstiréttur fjallaði um þau mál gaf hann vísbendingar um það til hvaða atriða rétturinn lítur þegar hann veltir fyrir sér álitamálum á borð við þau sem inn á borð hans komu í það skipti. Það er gagnlegt fyrir túlkun laga til framtíðar að skoða (Forseti hringir.) skilaboð Hæstaréttar í þeim dómi. (Forseti hringir.) Það þýðir ekki að aðstæðurnar séu hinar sömu.