ÍL-sjóður.
Virðulegi forseti. Í þessu áliti sem ég rakti hér er farið yfir það nákvæmlega með hvaða hætti stofnað var til ábyrgðarinnar. Það er meira að segja sérstakur kafli sem veltir upp þeirri spurningu: Getur verið að engin ríkisábyrgð sé fyrir hendi þar sem skort hafi rétt verklag við innleiðingu hennar? Ef ég skil spurninguna rétt er hv. þingmaður að velta því upp hvort almennu lögin um ríkisábyrgðir taki yfir alla þá skilmála og sérlög sem eiga við í þessu. Það tel ég ekki vera, hafi ábyrgðinni verið komið fyrir með sérstökum hætti, öðrum en gert er ráð fyrir í almennum lögum.