ÍL-sjóður.
Virðulegur forseti. Þessi skuldabréf hafa gengið kaupum og sölum undir þeim formerkjum að á þeim væri ríkisábyrgð, einföld ríkisábyrgð, og líka að það væri opinber stofnun og hluti af ríkinu sem stæði á bak við þessa skuldbindingu. Núna allt í einu vill fjármálaráðherra koma fram og segja: Nei, heyrðu, ég vil slíta þessum skuldabréfum. Ég vil ekki að þau gildi til 40 ára. Ég vil að ábyrgðartími ríkisins sé ekki til 40 ára, ekki til 30 ára, ekki til 20 ára. Hann vill helst ganga frá þessu strax í dag af því að það er ódýrara til framtíðar fyrir ríkissjóð. Ég get því ekki séð annað en að hæstv. fjármálaráðherra sé að leggja það til að íslenska ríkið standi ekki við skuldbindingar samkvæmt þessari ríkisábyrgð með því að stytta tímann. Ríkissjóður ábyrgðist á sínum tíma, 2004, skuldabréf til ákveðins tíma. Núna vill hæstv. fjármálaráðherra stytta þann tíma og það tel ég ganga gegn öllum hagsmunum ríkissjóðs. Ég reyndi að spyrja hæstv. ráðherra aðeins áðan um mat aðila á markaði, sem sagt varðandi lánshæfismat: Hvaða áhrif mun þetta (Forseti hringir.) hafa á lánshæfismat ríkisins þegar það stendur ekki við skuldbindingar sínar?