ÍL-sjóður.
Virðulegur forseti. ÍL-sjóður getur ekki staðið við skuldbindingar sínar. Það er staðan. (EÁ: Þú getur það.)Og ef sú staða kemur upp þá reynir á skilmála ríkisábyrgðarinnar. Eins og ég hef hér rakið þá kemur til álita í þeim sviðsmyndum sem við stöndum frammi fyrir að koma með lagafrumvarp sem þarf þá að standast tilteknar kröfur til þess að tryggja jafnræði, gagnsæi um uppgjör til þess að ljúka óvissunni sem hvílir yfir þessu máli og fara í fullnaðaruppgjör á öllum kröfum sjóðsins eins og þær þá standa með áföllnum vöxtum og eftir það þá standa kröfuhafarnir með fullnaðaruppgjör sem fram fer með þessum hætti við gjaldfellingu og þurfa eftir það að ávaxta eignir sínar eftir nýjum leiðum.