ÍL-sjóður.
Virðulegi forseti. Það var ekki annað að skilja á hv. þingmanni en að þingmaðurinn vildi að ríkið gengi í sjálfskuldarábyrgð fyrir skuldbindingum ÍL-sjóðs og tæki þannig á sig það sem við metum í dag sem 200 milljarða núvirtan kostnað. Ég vil spyrja: Hvenær á að byrja að borga og útilokar hv. þingmaður að gripið verði til aðgerða? Er þingmaðurinn með þessu að tala um að gera ekki neitt? Leyfa vandanum að vinda upp á sig þangað til ríkisábyrgðin fellur með fullum þunga á ríkissjóð? Ljóst er að kostnaðurinn mun vaxa. Það væri gríðarlega óábyrgt, eins og hv. þingmaður lagði upp með, að hugsa sem svo að þetta gæti reddast af því að vextir gætu þróast með jákvæðum hætti fyrir ÍL-sjóð og þá muni þetta ekki verða jafn mikið vandamál í framtíðinni. Nægur er vandinn nú þegar.
Hitt sem ég vil benda á er að hv. þingmaður horfir algjörlega fram hjá að með því að allir kröfuhafar ÍL-sjóðs fái gerðan upp höfuðstólinn með áföllnum vöxtum þá hafa þeir mjög langan tíma til að vinna úr eignunum og draga þannig úr tjóninu sem birtist í muninum á verðtryggða bréfinu með vöxtum upp á 3,75% og því að fá strax gert upp. Er ekki hægt að fallast á að það fari betur á því að þessir aðilar vinni að því að ávaxta eignirnar sem eru upp á hundruð milljarða næstu áratugina en að ríkissjóður fari að beita sér í gegnum ÍL-sjóð í áhættusamari eignir í þeim tilgangi einum að reyna að bjarga þessari, að því er virðist, algerlega vonlausu stöðu?