ÍL-sjóður.
Virðulegi forseti. Hvenær á að byrja að borga? Ég veit ekki betur en svo að það sé nú þegar búið að borga inn í Íbúðalánasjóð og ÍL-sjóð í gegnum tíðina. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem þetta verkefni kemur upp. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem þessi umræða kemur upp og hún er sett fram eins og þetta sé eitthvað sem eigi ekki að koma neinum á óvart. Staðreyndin er sú að þegar þetta hefur verið rætt í gegnum tíðina við aðila á fjármálamarkaði, við lífeyrissjóði, þá hefur ítrekað komið fram að það væri ekki hægt að setja ÍL-sjóð í þrot þannig að þetta er líka sagan í því samhengi, óábyrgt (Fjmrh.: Nema með lögum.) — nema auðvitað með lagasetningu. Það er alveg rétt hjá hæstv. fjármálaráðherra að í þessu rými er hægt að gera ýmislegt. Spurningin er sú hvort íslenska ríkisstjórnin ætli að haga sér með þeim hætti að breyta lögum eftir á þegar kemur að skilmálum í lánveitingum. Við getum alveg rætt það hvort fólki hér inni þyki það eðlileg hegðun gagnvart til að mynda einkafjárfestum og aðilum á erlendum mörkuðum. Ef þetta eru skilaboðin sem hæstv. fjármálaráðherra vill senda — gjörið þið svo vel.
Hvort það sé óábyrgt að láta þetta falla — auðvitað er óábyrgt að vera yfir höfuð í þessari stöðu en það þýðir ekki að ríkissjóður geti ekki gripið inn í á neinum tímapunkti og byrjað að gera þetta upp með öðrum hætti. Auðvitað má ræða hvort einkaaðilar eða eignastýringarfyrirtæki gætu séð betri fjárfestingartækifæri í framtíðinni. Staðreyndin er hins vegar sú að þegar hæstv. fjármálaráðherra hélt sinn blaðamannafund í síðustu viku var þetta ekkert annað en hótun við þessa aðila um að sjóðurinn yrði knúinn í þrot ef þeir myndu ekki taka þeim skilmálum sem átti að semja um. Það eru býsna sterk skilaboð sem mér finnst algjörlega litið fram hjá hér. Það þýðir ekkert að spyrja stjórnarandstöðuþingmenn einhverra spurninga um hvernig þeir ætli að greiða fyrir þetta. Það liggur alveg fyrir að þetta eru skuldbindingar sem voru í ábyrgð. Þetta verður leyst innan ríkissjóðs ef þess þarf. Það er ekki ástæða til að vanvirða skilmála og senda svo neikvæð skilaboð út í kosmósið.