ÍL-sjóður.
Virðulegi forseti. Þessi ræða verður ekki skilin á annan veg en að hv. þingmaður treysti sér einfaldlega ekki til að taka á þessu máli. Hann kemur ekki með neinar lausnir, belgir sig út af stórum orðum og talar um að þetta sé allt ómögulegt. Ég er að setja málið á dagskrá til að taka afstöðu til þess hvað eigi að gera, ekki til að blása út hér með stórum orðum að þessi staða skuli vera komin upp, það sé allt saman ómögulegt og mörgum um að kenna. Það er ekkert sem breytir því að við verðum að svara hvernig eigi að taka á málinu. Hv. þingmaður talar gjarnan um að við þurfum að fjárfesta meira í innviðunum, hlúa að samfélaginu, setja hærri framlög inn í heilbrigðiskerfið, félagskerfið og hingað og þangað. Þá þarf að gera sér grein fyrir því að maður getur ekki ráðstafað sömu krónunni tvisvar.
Hv. þingmaður er hér að tala fyrir því að við útvíkkum ríkisábyrgðina á ÍL-sjóði, að við göngumst í reynd fyrir sjálfskuldarábyrgð og setjum 200 milljarða inn í sjóðinn á næstu árum. Þeir 200 milljarðar fara þá ekki innviðauppbygginguna sem hv. þingmaður er að tala um.