153. löggjafarþing — 23. fundur,  26. okt. 2022.

ÍL-sjóður.

357. mál
[16:45]
Horfa

Kristrún Frostadóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Þetta er náttúrlega klassísk taktík, að etja hópum saman. Ef við gjaldfellum ekki þessa skuldbindingu eru aðrar fjárfestingar sem líða og sömu krónunni verður ekki eytt tvisvar. Hvernig væri að gera mat á því? Það hefði nú verið ágætt að heyra frá hæstv. fjármálaráðherra hvort mat hefði verið gert á því innan fjármálaráðuneytisins hvaða afleiðingar það hefði fyrir fjármögnunarkjör þessara blessuðu innviðaverkefna, sem er núna svo mikið verið að ræða, að fara í þessa stóru aðgerð sem við ræðum hér. Samhengi hlutanna hlýtur að þurfa að ræða í þessari umræðu.

Að ég treysti mér ekki til að taka á þessu máli — þetta er náttúrlega fáránleg framsetning. Í fyrsta lagi er þetta augljóslega á borði hæstv. fjármálaráðherra. Höfum það algerlega á hreinu að þetta er einstaklingur sem hefur setið í því ráðuneyti í tíu ár. Viðkomandi aðili hefur haft áratug til að taka á þessu máli. Þetta er fáránleg framsetning. Það er ekki það sama að segjast vilja leysa þetta mál án þess að gjaldfella traust til ríkissjóðs og fara í mögulega eignaupptöku, nema sé vitnað til einhvers konar lögfræðiálits sem byggir á neyðarlögunum við allt aðrar aðstæður, og að maður vilji ekki taka á þessu máli. Þessi pólarísering í umræðunni er mjög óholl. Það er líka mjög óhollt og óábyrgt af hæstv. fjármálaráðherra og þeim fylgitunglum sem ræða þetta líka í samhengi þess að þetta sé sparnaður og við séum að tala um einhverja vogunarsjóði eða einhverja fjármálaaðila sem verið er að strjúka. Þetta er mjög óábyrg umræða. Við eigum að geta rætt í þessum þingsal um eðli þessarar ákvörðunar en ekki benda á staka stjórnarandstöðuþingmenn og hvað þeir myndu gera ef þeir sætu í stóli hæstv. fjármálaráðherra. Ég leyfi mér bara að segja það.