ÍL-sjóður.
Virðulegi forseti. Ég veit nú eiginlega ekki alveg hvar ég á að byrja. Hér hefur fólk farið mikinn. Hv. þingmaður nefnir hér pólaríseringu, popúlisma og Liz Truss, allt í einni bendu. Ég ætla bara að vísa þeirri umræðu til föðurhúsanna, þar sem þau byrjuðu, því að ef það er einhver popúlismi hér þá er það sú ræða sem flutt var um að hér sé unnið með óábyrgum hætti. Ég hafna því algerlega. Hæstv. fjármálaráðherra leggur fram hér kosti. Hann dró í síðustu viku fram vandamál sem við getum ekki litið fram hjá og getum ekki lengur látið sem ekki sé til. Hann er að hefja hér samtal og samninga. Valkostirnir eru að gera í rauninni ekki neitt, leggja sjóðnum til fjármuni, setja sjóðinn í þrot eða að ná samkomulagi. Ég tel það bara mjög óábyrga pólitík að ætla ekki að gera neitt og ætla að ýta þessu máli yfir á framtíðarkynslóðir. Í ræðu í gær spurði hv. þm. Jóhann Páll Jóhannsson: Á að taka þetta fé úr vinstri eða hægri vasanum? Því miður er það svo að við stöndum frammi fyrir kostum sem allir eru slæmir. En það er virkilega óábyrgt að ætla ekki að gera neitt og ætla að ýta þessum skuldbindingum inn í framtíðina.