ÍL-sjóður.
Forseti. Það er hálfsúrrealískt að vera að ræða ríkisábyrgðir hérna aftur eftir umræðuna um ríkisábyrgð Vaðlaheiðarganga um árið. En það er nauðsynlegt að skilja hvað er í gangi hér. Maður er rétt að byrja að reyna að skilja hvernig þetta virkar allt. Það er alveg skýrt að það er svokölluð eigendaábyrgð á þessum sjóði. Hvað það nákvæmlega þýðir þegar allt kemur til alls má klóra sér aðeins í hausnum yfir því að lög um ríkisábyrgðir eru ekkert gríðarlega skýr. Við lentum dálítið í því í afgreiðslu og umfjöllun um Vaðlaheiðargangadótið. Það var alls konar; þurfti ekki að borga gjald hingað og þangað og núna er búið að endurfjármagna og breyta í eigið fé. Það eru alls konar tilfærslur á ríkisábyrgðinni sem er búið að vera mjög áhugavert að fylgjast með.
Í 2. mgr. 3. gr. laga um ríkisábyrgðir segir að ábyrgð ríkissjóðs skuli ekki nema hærra hlutfalli en 75% af lánsfjárþörf verkefnis sem veitt er með ríkisábyrgð. Hvort þetta á endilega beint við eigendaábyrgðina er óljóst, það er erfitt að sjá það í þessu kraðaki hérna. En það er skýrt að það á að borga ákveðið ábyrgðargjald eða áhættugjald samkvæmt 7. gr. Þar er ÍL-sjóður einmitt sérstaklega tiltekinn, lán sem áhættugjald samkvæmt 4. gr. hefur verið greitt af. Sá sjóður er undanþeginn greiðslu ábyrgðargjalds. Þetta eru tvö skemmtileg gjöld þarna innan ríkisábyrgðanna, áhættugjald og ábyrgðargjald, sem er alltaf gaman að fara í gegnum. Það eru um 199 milljónir samkvæmt fjárlagafrumvarpi 2003 sem eru greiddar í þetta ábyrgðargjald, ég ruglast alltaf á þessum tveimur gjöldum. Gert er ráð fyrir slíkum greiðslum upp á það sem eiga að dekka áhættu ríkissjóðs af ríkisábyrgðinni, 200 milljónir. Við erum að tala um 200 milljarða mögulega í áhættu þannig að maður veltir því fyrir sér hvort það sé verið að meta rétt hérna hver áhættan er og hvort það sé verið að stilla áhættunni upp á viðeigandi hátt.
Það er í, þetta er á svo mörgum stöðum, frumvarpi laga um Húsnæðis- og Mannvirkjastofnun aðeins fjallað um ríkisábyrgðir. Þar er sagt mjög skýrt, með leyfi forseta:
„… Íbúðalánasjóður njóti ríkisaðstoðar í formi eigendaábyrgðar, vaxtaniðurgreiðslna, undanþágu frá arðsemiskröfu og greiðslu tekjuskatts. Ákvörðun Eftirlitsstofnunar EFTA frá 18. júlí 2011 var í formi tilmæla (e. appropriate measures) til íslenskra stjórnvalda um að grípa til nauðsynlegra ráðstafana þannig að lánafyrirkomulag Íbúðalánasjóðs yrði í samræmi við skuldbindingar Íslands samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið.“
Ég er líka með minnisblað, lögfræðiálit, sem fjallar aðeins um þetta. Hér er sagt, virðulegur forseti:
„Fullgild lagaheimild var til staðar fyrir útgáfu bréfanna en í skilmálum útgáfunnar voru sett skýr viðmið um réttindi kröfuhafa og túlkun ríkisábyrgðarinnar sem veitt voru fyrirheit um.“
Sem sagt: Við erum með þessi almennu lög um ríkisábyrgðir þar sem það er skýrt að það er eigendaábyrgð á ÍL-sjóði og Íbúðalánasjóði þar á undan en það er ekki gerð sérstök lagaheimild fyrir þeim skilmálum sem settir eru í þessum bréfum sem eru gefin út, útgáfu ÍL-sjóðs bréfanna, þessum HFF-bréfum sem er verið að tala hérna um. Þau eru bara aðgengileg í skilmálum bréfaútgáfunnar sem slíkrar og ég velti því fyrir mér hvort það standist að framkvæmdarvaldið geti gefið út einhver bréf með ríkisábyrgð sem fer umfram almennu lögin um ríkisábyrgðir. Ég held að það sé mjög tæpt því að það er sérstaklega talað um það í lögum um ríkisábyrgðir að það sé ekki sjálfskuldarábyrgð nema það sé gert með lögum og það sé umfram þessa einföldu ábyrgð sem málið snýst dálítið um. Og líka að þessi eigendaábyrgð ríkissjóðs sé síðan óbein. Það er talað hérna um form ríkisábyrgðar þegar var verið að setja Íbúðalánasjóð á stofn fyrir langa löngu síðan. Þar væri eigendaábyrgð sem gæti verið bein eða óbein, svipuð og einföld ríkisábyrgð eða sjálfskuldarábyrgð á móti. Það fer eftir því á hvern á að ganga þegar komið er fram yfir gjalddaga. Þegar einföld ríkisábyrgð fellur á gjalddaga er fyrst gengið á þann sem ber ábyrgð, sem ríkissjóður er ábyrgur fyrir, ef það næst ekki þar er farið til ríkissjóðs. Ef það er sjálfskuldarábyrgð er hægt að ganga beint á ríkissjóð, alveg eins með óbeina eigendaábyrgð, þá er gengið fyrst á þann sem er ábyrgur, Íbúðalánasjóð, og svo á ríkissjóð. Ef það er bein ábyrgð er gengið beint í ríkissjóð. Óþarflega flókið að hafa mismunandi hugtök þarna. En þetta er held ég dálítið lykilatriði í þessu. Þarna eru gefin út bréf með þeim skilmálum að ríkissjóður sé í fullri ábyrgð, það sé ekki hægt að greiða upp þessi lán. Þau séu bara á ákveðnum gjalddaga með þessum vöxtum og það sé ekki hægt að hrófla við því á neinn hátt. Það sé að vísu hægt að kaupa bréfin á markaði á þeim vöxtum sem þau eru á en ekki hægt að greiða þau upp. Ríkissjóður gæti tæknilega séð keypti upp öll bréfin og svo þegar þau falla á gjalddaga þá á ríkið hvort eð er bréfin sjálft og greiðir sjálfu sér, þetta er komið í hringavitleysu, það er hvort eð er búið að því með því að kaupa bréfin.
Hvort það sé umræða hérna er ég ekki alveg klár á, hvort það sé einn af möguleikunum sem hefur verið ræddur hérna, því að sú framsetning er frekar óljós. Það er fjallað um tvö atriði á bls. 20 í skýrslunni, undir Stöðu ríkisábyrgða við greiðsluþrot, og þar eru a-, b- og c-liður; leggja sjóðnum til meira fé, ákveða árlegar fjárveitingar sem jafngildi afborgun eða taka skuldbindingu sjóðsins beint yfir. Það er ekki fjallað um að það sé bara hægt að kaupa bréfin t.d. og hvað það myndi kosta. Svo segir að að þessum greinum slepptum komi til greina almennar reglur skuldaskilaréttar — það er mjög skrýtið ef það fer í þá áttina og ég efast um að það standist þegar allt kemur til alls — og einnig reglur um ríkisábyrgðir og að hvort tveggja geti komið til álita ef reynir á ábyrgð ríkissjóðs vegna greiðsluþrots ÍL-sjóðs.
Hvað hver möguleiki þýðir fyrir annars vegar ríkissjóð og hins vegar fyrir eigendur bréfanna, hverjir þeir eru o.s.frv., er ekkert rosalega augljóst. Það lítur út fyrir að það sé þannig með heildarupphæðina sem eigendur bréfanna eiga, þessa 200 milljarða sem er talað um á núvirði, að ríkið sé að reyna annaðhvort að standa undir þeirri skuldbindingu og greiða það upp eða greiða upp ákveðna upphæð bara í dag og sú upphæð eigi að afgreiða allt framtíðargreiðsluflæði vegna þessara bréfa, þessara lána.
Það er mikið kraðak í þessu sem maður þarf að reyna að púsla saman. Við erum búin að kalla eftir smá umfjöllun um þetta inni í fjárlaganefnd því að þetta er dálítið flókið mál og mörg álitaefni uppi. Helsta álitaefnið sem ég velti fyrir mér er einmitt hvort það megi setja svona skilyrði, þrengri skilyrði í lánin, í bréfin sem voru gefin út heldur en eru í almennu lögunum án þess að til komi sérstök lagasetning, sem ég finn ekki. Það gæti verið einhvers staðar í öllum þeim lögum sem búið er að setja undanfarin 20 ár eða eitthvað því um líkt og að lögin sem voru sett þarna séu nú fallin úr gildi en giltu um þetta þegar bréfin voru gefin út á sínum tíma og alls konar svoleiðis. Ég ætla ekki að fara í þá lögfræði akkúrat á þessum tímapunkti. En ég set stórt spurningarmerki við að það hafi verið gefin út bréf að því er virðist með mun strangari skilyrðum heldur en almennu lögin um ríkisábyrgð kveða á um. Og ef svo er ætti það undir öllum kringumstæðum að flokkast sem ólöglegt samningsákvæði, sem er mjög varhugavert. Það myndi væntanlega þýða að löglega séð væri ríkissjóður alveg í góðu lagi með að segja bara bless og búið með því að greiða upp núverandi stöðu lánanna. En skaðinn er samt þarna til staðar fyrir alla sem eiga bréfin og voru með ákveðnar væntingar um framtíðargreiðslur gjalddaga 2024, 2034 og 2044. Ef þeir gjalddagar koma ekki og það verður ekki greitt á þeim tíma þá mun reyna einmitt á þetta mál, hvort skilmálarnir í bréfunum standist miðað við almenn lög um ríkisábyrgð. Ég veit satt að segja ekki hvort mun verða ofan á, ég get ekki sagt til um það. En ég held að þeir aðilar sem hafa keypt þessi bréf séu algjörlega í góðri trú miðað við hversu strangir skilmálarnir eru í þessum bréfum og hafi væntingar til þess að heildarupphæðin verði greidd.
Það er hérna í lögfræðiálitinu, það er að vísu á ensku svo ég ætla að sleppa því að lesa það upp, ég skil ekki af hverju það var ekki þýtt, til þess að spara forseta nokkurra greina enskan upplestur, á bls. 4 og 5 vel skilgreint að ábyrgðin er óafturkallanleg og hún nær yfir allar þær skuldbindingar sem eru til staðar og framtíðarskuldbindingar HFF ásamt skyldu til að borga höfuðstól og vexti með tilliti til þeirra atriða sem þar eru tekin fram. Það er rosalega skýrt við hverju þau sem fá þessi lán, fá þessi bréf, mega búast. Það er rosalega skýrt hvað ríkið og Íbúðalánasjóður eru að selja þarna. Hvort það haldi með tilliti til laga um ríkisábyrgð veit ég ekki, hvort það geri það að verkum að 75% reglan sem er hérna í 3. gr. í ríkisábyrgðarlögunum eigi við eða ekki.
Þetta eru bara alveg risastórar spurningar sem við þurfum að svara, og á öllum stigum þessarar spurningar, ef við erum á einhvern hátt að svindla á þeim væntingum sem lánin voru veitt á, þessi HFF-bréf, er það réttlætanlegt? Það er sú spurning sem við þurfum að spyrja okkur. Við fengum skilaboð frá aðila sem hafði verið í rekstri á Styrktarsjóði hjartveikra barna þar sem hún taldi til að þessi bréf væru einn grundvallarþáttur þess styrktarsjóðs og í rauninni fjármögnuðu rekstur hans og styrki til þeirra verkefna sem þar voru undir. Ég get nefnt dæmi um slíkan sjóð þegar fjármálaráðherra talar um einhverja vogunarsjóði eða eitthvað því um líkt. Þá ætti fjármálaráðherra kannski að vera aðeins nákvæmari í orðalagi frekar en að reyna að mála alla þá aðila sem eiga bréf þarna sem einhvers konar vogunarsjóði. Það er bara ekki þannig. Það er ekki rétt og ef fjármálaráðherra ætlar að tala svoleiðis þá verður hann að gera betur grein fyrir máli sínu frekar en að boða slíkan hræðsluáróður. Ég hafna því og ég hlakka mikið til að fjalla um þetta mál í fjárlaganefnd því að það er flókið og ég hef gaman af flóknum hlutum.