153. löggjafarþing — 23. fundur,  26. okt. 2022.

ÍL-sjóður.

357. mál
[17:38]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Í mínum huga eru skuldabréfaviðskipti í sjálfu sér ekki flókin og það að kaupa skuldabréf í útboði til 20, 30, 40 ára á föstum vöxtum, 3,75% verðtryggðum, er ekki flókinn gjörningur í sjálfu sér. Það lá fyrir 2004 hver skuldin var og hvað ríkið átti að borga á sínum tíma en ríkið vissi ekki að það yrði svo gríðarlega mikil vaxtalækkun þannig að það kæmi út í tapi. Það var varað við þessu á sínum tíma. Sérfræðingar voru að vara við þessu: Ekki gera þetta svona. Samt var það gert, þannig að þetta er alveg með ólíkindum. Markmiðið var að leggja áherslu á að erlendir fjárfestar gætu keypt þessi bréf. Það var það sem var verið að gera, það var farið út í heim, litla Ísland var að reyna að fara út í heim og má segja að þeir hafi verið plataðir stórkostlega. Það sem ég held í þessu máli er það að hæstv. ráðherra telur sig geta knúið fram einhverja slitameðferð eða gjaldþrotaskipti á opinberri stofnun, en það kemur skýrt fram í lögum að slíkt er ekki heimilt. Það kemur líka fram í lögfræðiálitinu, á bls. 4, á ensku, með leyfi forseta:

„HFF cannot be subject to bankruptcy proceedings …“

Það getur ekki farið í gjaldþrotameðferð, klárt mál. Það er hins vegar hægt að fara í árangurslaust fjárnám þarna. Ef ég væri kröfuhafi myndi ég gera fjárnám í öllum eigum ríkisins. Það sem ríkið er að fara að gera er að stytta líftíma skuldbindingar sinnar til þess að komast hjá því að ábyrgjast þessi lán til 40 ára eða 30 ára. Það er það sem ríkið ætlar sér að gera. Það tel ég ekki ganga upp. Það hefur verið verslað með þessi bréf á markaði á ákveðnu verði, það hefur myndast markaður með þessi bréf undir þeim formerkjum að ábyrgðin myndi halda. En svo kemur fjármálaráðherra með yfirlýsingar um að hann ætli sér að gera eitthvað allt annað og stytta líftíma bréfanna. Það tel ég vera, ég segi ekki vítavert en það er glæfralegt. (Forseti hringir.) Ég vil gjarnan fá að heyra hver skoðun hv. þingmanns er á því hvað markaðirnir segja og hvert eðli skuldabréfanna sé raunverulega.