ÍL-sjóður.
Forseti. Já, það er rétt sem hv. þingmaður segir, en það er einnig bætt við: Nema með lögum. Þá sé einhvern veginn hægt að breyta þessu grunnfyrirkomulagi. Við erum hérna löggjafinn og getum gert bara hvað sem er og við ætlum núna að skella þessu í þetta lagaferli héðan í frá. Þar er, sýnist mér miðað við skýrsluna — á bls. 20 segir, með leyfi forseta:
„Við gjaldþrotaskipti er ekki hægt að fá greidda vexti sem ekki hafa fallið til.“
Þetta virðist vera einmitt það sem ráðherra er að reyna að miða að og þá er verið að þröngva þessu inn í lög um gjaldþrotaskipti. Ég held að það sé frekar ómögulegt nema einmitt að ríkissjóður sé tekinn til gjaldþrotaskipta, sem ég sé ekki ganga — af því að það er sem sagt eigendaábyrgð, óbein eigendaábyrgð, á ÍL-sjóði og þá sé frekar varasamt að breyta ÍL-sjóði núna yfir í að vera ekki A2-hluta stofnun eða aðili ríkisins yfir í eitthvað sem geti fallið undir lög um gjaldþrotaskipti þannig að allt í einu sé búið að rjúfa tengslin milli ríkisábyrgðarinnar eins og hún er skilgreind í lögum núna. Það yrði að gera það þannig því að ekki myndi maður virkja eigendaábyrgðina, óbeinu eigendaábyrgðina, fara þá í gegnum ÍL-sjóð og klára allt úr honum og fara síðan í ríkissjóð og segja: Heyrðu, nú ætla lög um gjaldþrotaskipti að virka á ríkissjóð og ríkissjóður ætlar ekki að borga neina vexti sem hafa ekki fallið til. Þá er ríkissjóður í gjaldþrotaskiptum sem er miklu meira mál.