ÍL-sjóður.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Það sem mér finnst vera aðalmálið í þessu öllu saman er það að við erum hér með fyrir framan okkur ákveðinn vanda. Fjármálaráðherra kemur með þessa skýrslu til þingsins og segir við Alþingi: Heyrðu, þetta er mál sem við stöndum frammi fyrir inn í nánustu framtíð og við þurfum með einhverjum hætti að finna lausn á málinu.
Það sem mér hefur kannski þótt skorta, frú forseti, í umræðunni í dag er að það komi einhverjar raunverulegar lausnir, einhverjar hugmyndir um það hvernig við ætlum að leysa vandann þannig að við — og þess vegna nefni ég komandi kynslóðir og börnin, þannig að þau standi ekki frammi fyrir jafnmiklum vanda og blasir við í skýrslunni.
Varðandi hitt málið, ég bara rek augun í það, ef ég fæ að lesa upp úr skýrslunni, með leyfi forseta:
„Í fyrra kerfi (húsbréfakerfinu) hafði sjóðurinn möguleika á að greiða inn á fjármögnun sína ef uppgreiðslur útlána reyndust verulegar og viðhalda þannig jafnvægi á milli greiðsluflæðis eigna og skulda. Í nýju kerfi varð fjármögnun sjóðsins í formi íbúðabréfa óuppgreiðanleg. Lántakendur hafa á hinn bóginn ávallt haft heimild til að greiða upp lán sín hvenær sem er.“
Ég held, eins og ég er búinn að fara yfir margoft, að þetta sé auðvitað rót vandans og að þetta sé vandinn sem við stöndum frammi fyrir.