ÍL-sjóður.
Forseti. Það er alltaf verið að bauna á mann að maður komi ekki með lausnir. Það er alltaf jafn gaman. Við erum hérna einstaka þingmenn að hjakkast í að reyna að spyrja spurninga og fá svör og þau eru svona yfirleitt mjög loðin.
Ég fór í ræðu minni, ef hv. þingmaður var ekki að fylgjast með, einmitt yfir þessi mögulegu álitamál sem við stöndum frammi fyrir varðandi þá valmöguleika sem eru til staðar. Við þurfum að greiða úr því hvað þeir þýða og hversu fýsilegir þeir eru áður en við tökum ákvörðun.
Ég bætti meira að segja einum valmöguleika við sem var ekki fjallað um varðandi það einfaldlega að kaupa bréfin. Þá á ríkissjóður eftir að gjaldfalla og það bara gerist eins og það gerist. En það er ekkert fjallað um það í þessari skýrslu þannig að ég get ekki gert neinar athugasemdir. Ég er ekki með heilt ráðuneyti á bak við mig til þess að gera greiningar á þessu.
Þessi skýrsla býður upp á nokkra möguleika. Við þurfum að fara yfir það hversu fýsilegir þeir möguleikar eru, yfir hvern möguleika fyrir sig og yfir afleiðingarnar af hverjum möguleika fyrir sig áður en við getum valið lausn.
Við höfum spurt hæstv. fjármálaráðherra um þá lausn sem ráðherra ýjaði að að ætti að verða fyrir valinu fyrir hönd framtíðarkynslóða. Þá klórar maður sér pínulítið í hausnum vegna þess að það eru einmitt framtíðarkynslóðir sem verða líka fyrir barðinu á því ef sú leið verður valin. Annaðhvort borgar almenningur fyrir þetta í gegnum ríkissjóð eða í gegnum skert lífeyrisréttindi. Við stöndum frammi fyrir þeim valmöguleikum á þeirri leið sem fjármálaráðherra virtist mæla með, þótt hann hafi verið pínulítið óskýr með það.
Við skulum hafa á hreinu að það er ekki búið að velja. Það er alveg skýrt. Hvað verður valið er eitthvað sem við þurfum að spyrja okkur grundvallarspurninga um og vera með á hreinu hvaða afleiðingar verða af þeim valmöguleika sem við að lokum stöndum frammi fyrir.