ÍL-sjóður.
Forseti. Já, það skiptir máli hvaða orð er verið að nota. Það er alveg rétt. Þegar fjármálaráðherra segir orðið kröfuhafar þá erum við með neikvæða tengingu við þann hóp úr hruninu og þegar ráðherra notar þetta orðalag er hann beinlínis að reyna að beisla þær tilfinningar okkar gagnvart þessum aðilum sem hann nefnir kröfuhafa, sem kemur síðan upp úr dúrnum að er m.a. Styrktarsjóður hjartveikra barna. Halló, rosalegur kröfuhafi. En þó að þarna væri einhver hrægammasjóður eða eitthvað svoleiðis þá er aðgengið að þessum bréfum þannig að það er ekki eins og aðilar sem keyptu þessi bréf, sama hver það var, hafi verið að reyna að plata eða ljúga eða stela eða eitthvað svoleiðis til að komast yfir þessi verðmæti. Það er algerlega skýrt að þetta er á forsendum hins opinbera, forsendum ríkisstjórnarinnar í rauninni sem ákveður skilmálana og ríkisábyrgðina við útgáfu þessara bréfa. Algjörlega óháð því hverjir kaupa þá er skýrt hver ber ábyrgð á því hvernig skilmálarnir voru. Það er enginn að sölsa undir sig neitt eða beita einhverjum blekkingum til að koma 200 milljarða höggi á ríkissjóð. Þess vegna í þessu dæmi spyr ég: Skiptir í alvörunni máli hver það er sem á bréfin þegar allt kemur til alls? Klúðrið er augljóst. Við vitum alveg hvar það kemur. Það er mjög vel farið yfir það í skýrslunni. Það er í útgáfu bréfanna árið 2004 í rauninni, eins og varúðarorðin voru varðandi uppgreiðsluáhættuna. Þar eru mistökin gerð. (Forseti hringir.) Það hefði verið hægt að gera ýmislegt í kjölfarið til að minnka áhættuna. Það var gert ýmislegt til að auka áhættuna meira að segja líka. (Forseti hringir.) En þarna er kjarninn. Skiptir þá máli hver á bréfin?