153. löggjafarþing — 23. fundur,  26. okt. 2022.

ÍL-sjóður.

357. mál
[18:34]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég held að stóra atriðið hér, svo maður sleppi allri tilfinningasemi, sé einfaldlega að fá það á hreint hverjar heimildir ráðherrans eru til að fara í svona aðgerðir og þingsins þá um leið. Það er viðfangsefnið. Fyrst að skýra réttarstöðuna og síðan að vinda okkur í það að ræða hvernig við ætlum að útfæra tjónið í kjölfarið. En ég er greinilega á sömu slóðum og hv. þingmaður því ég er áhugamanneskja um orð og orð hafa áhrif. Orðum er nú oft beitt með markvissum og klókum hætti. Og ég held að það sé ekki hending, ég held að það sé ekki tilviljun þegar fjármálaráðherra talar í fyrstu um það að honum sé skylt að bregðast við og það sé ábyrgð hans sem fjármálaráðherra að leggja til lausn, gott ef hann nefndi ekki bara í þágu barna og framtíðarinnar, og boðaði þennan sparnað nánast í kristilegum tóni; sjá, hvað ég boða yður, hér er sparnaðurinn. En svo kannski hjálpar það mér að vera ekki að sligast undan hagfræðigráðu. En þegar ég horfði á þessar fréttir og hugsaði: Hvernig má það vera að við séum hér í aðra röndina að tala um gjaldþrot, að við séum að tala um tap upp á 1,5 milljarða á mánuði, 18 milljarða á ári en fjármálaráðherra er að tala um einhvern sparnað upp á 150 milljarða? Hvernig gengur reikningsdæmið upp? Ég er máladeildarkona. Ég fékk það ekki til að ganga upp enda gengur það ekki upp. En mér finnst bara mikilvægt að halda þessu til haga. Þetta getur haft áhrif á lífeyrisgreiðslur landsmanna og þessir kröfuhafar geta verið aðilar eins og í dæmisögunni sem ég rakti hérna áðan, dæmisögunni af Styrktarsjóði hjartveikra barna.