153. löggjafarþing — 23. fundur,  26. okt. 2022.

ÍL-sjóður.

357. mál
[18:36]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Hún fór víða og minntist m.a. á samtal við kröfuhafa um skuldbindingar ríkisins samkvæmt þeirri einföldu ábyrgð sem hér er fjallað um. Mín spurning til hv. þingmanns er: Um hvað ætti þetta samtal eða viðræður að fjalla annað en að lífeyrissjóðirnir — ég segi ekki gefi ríkinu pening — gefi eftir af kröfum sínum samkvæmt skuldabréfum sem voru gefin út 2004? Ég get ekki séð að hægt sé að fara styttri leið. Af hverju ættu lífeyrissjóðirnir að gera það? Þeir hafa skuldbindingar gagnvart sjóðfélögum sínum og vert að taka fram að þeir hafa þegar orðið fyrir gríðarlegu tapi á mörkuðum vegna ákvörðunar ríkissjóðs, bréfin hafa hríðfallið í verði og þeir sitja uppi með rýrari eignir vegna þess.

Um hvað ætti þetta samtal að vera? Ég skil ekki alveg þetta samtal, að ríkið með skattheimtuheimildir sínar og allt það fari til lífeyrissjóðanna og segi: Heyrðu, við viljum ekki að ÍL-sjóður greiði af þessum skuldabréfum samkvæmt skuldbindingum sínum og við viljum ekki að ábyrgðin okkar haldi út líftíma bréfanna. Ég myndi telja að allir fjárfestar í heiminum myndu líta á íslenska ríkissjóðinn sem annars flokks skuldara, sem hann er ekki í dag. Aldrei á lýðveldistímanum og síðan við urðum sjálfstæð hefur íslenska ríkið ekki staðið við skuldbindingar sínar.

Spurning mín er einföld: Um hvað ætti þetta samtal að vera annað en að lífeyrissjóðirnir ætli að færa ríkissjóði Íslands gríðarlega fjármuni?