ÍL-sjóður.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Fyrir mér er þetta sáraeinfalt mál. Í útboðinu 2004 voru settir skilmálar í skuldabréfin sem voru alveg galnir. Allir eru sammála um það. 3,75% fastir vextir til allt að 40 ára, verðtryggt. Það sem ríkið ætlar að reyna að gera er að stytta líftíma þessara bréfa. Það er ekkert í skilmálum sem heimilar það. Það segir meira að segja í lögfræðiálitinu frá Landslögum, frá Jóhannesi Karli Sveinssyni hæstaréttarlögmanni, bls. 2. Með leyfi forseta:
„Í skilmálum skuldabréfaútgáfunnar er gert ráð fyrir því að ekki sé unnt að greiða skuldina hraðar eða með öðrum hætti en um var samið.“
Það er ekki hægt að klára málið fyrr. Það er verið að tryggja að líftími þessara skuldabréfa fái að renna sitt skeið til enda. Ríkið ætlar að reyna að fara í viðræður um það og hæstv. fjármálaráðherra hefur lýst yfir að hann vilji reyna að slíta þessum sjóði, slíta líftíma þessara bréfa þannig að ríkið greiði lægra gjald og það kemur fram á bls. 20 í skýrslu hæstv. fjármálaráðherra, með leyfi forseta: „Við gjaldþrotaskipti er ekki hægt að fá greidda vexti sem ekki hafa fallið til.“ Verið er að reyna að slíta líftíma skuldabréfanna svo að framtíðarvextirnir verði ekki greiddir. Þannig ætlar ríkið að takmarka skuldbindingar sínar og tjón sitt, ef við getum orðað það svo, sem var samið um 2004. Það er „trixið“. Þetta finnst mér ekki vera hæft að gera. Þessi einfalda ábyrgð fer bara raunverulega að tikka ef eigur ÍL-sjóðs verða fyrir árangurslausu fjárnámi, þá kemur ábyrgðin til skjalanna. En núna ætlar ríkið meira að segja að reyna að koma í veg fyrir það með því að gera sjóðinn upp áður. Þá segir það: Gott og vel, við gerum þetta upp núna og þá greiðum við samkvæmt núvirðinu. Það finnst mér ganga gegn líftímanum. (Forseti hringir.)
Spurningin til hv. þingmanns er þessi: (Forseti hringir.) Telur hann — ég þekki það ekki nægilega skýrt — að ríkið sé þar með að ganga gegn skuldbindingum sínum eða ekki? (Forseti hringir.) Er ekki eina leiðin að standa við skuldbindingar ríkisins eins og þær voru ákveðnar í skilmálunum 2004? Það er ekkert þar á milli.
(Forseti (JSkúl): Forseti minnir hv. þingmenn á að virða ræðutíma sem er tvær mínútur í andsvari.)