153. löggjafarþing — 23. fundur,  26. okt. 2022.

ÍL-sjóður.

357. mál
[18:43]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég nefndi það í ræðu minni fyrr í dag að mér fyndist sitthvað í þessu lögfræðiáliti fjármálaráðherra orka tvímælis, svo ekki sé fastar að orði kveðið. Þau sjónarmið sem eru rakin varðandi neyðarlögin eiga bara ekkert við um þær aðstæður sem við erum í núna. Ég lít svo á að það eigi ekki við að beita þeirri hugmyndafræði sem fordæmi hér. Í því felst ákveðið svar og ég vona að ríkisstjórnin og hæstv. fjármálaráðherra beri gæfu til þess að meta hagsmunina, kostnaðinn eða afleiðingarnar af svona aðgerðum heildstætt. Hvers virði er það t.d. að ríkið njóti trausts á mörkuðum? Fyrsti leikur á alltaf að vera sá að ríkið efni skuldbindingar sínar og fari ekki í það að breyta reglum afturvirkt. Ég held að af því yrði mikið tjón til langs tíma ef traust ríkisins á mörkuðum veikist, ef þeir aðilar sem við höfum rætt um í dag kaupa bréf í þeirri trú að þar séu traustar fjárfestingar vegna þess að á þeim er ríkisábyrgð. Að því sögðu finnst mér sjálfsagt að menn setjist niður og ég ætla ekki að taka að mér hlutverk fjármálaráðherra og þykjast vita um hvað það samtal á að snúast. Mér finnst það alls ekki augljóst en ég sé ekkert því til fyrirstöðu að menn setjist niður. Fjármálaráðherra talar um að hin lagalega staða sé einföld og borðleggjandi og að rökin séu með honum. Einfalda svarið við því er: Væri svo í reynd, þá hefði hann ekki þurft að láta vinna fyrir sig lögfræðiálit.