ÍL-sjóður.
Forseti. Ég ætla að vera alveg sammála hv. þingmanni um að það eru hagsmunir almennings sem skipta hérna máli. Ég persónulega hef hins vegar áhyggjur af því að fjármálaráðherra hafi meiri áhyggjur af skuldastöðu ríkissjóðs og þeim tölum óháð því hvernig það tengist almenningi. Það er mín persónulega skoðun og ég ber bara ábyrgð á þeirri skoðun eins og gengur og gerist.
Það er dálítið kaldranalegt í öllu þessu máli að hér er ríkið í rauninni að glíma við þessi klassísku Íslandslán, verðtryggðu lánin sem allir eru búnir að vera að kvarta yfir í langan tíma, sem sagt yfir verðtryggðu lánunum sem eru drifkrafturinn í því að við ættum ekki að vera með verðtryggingu í gangi. Núna eru öll verðtryggðu lánin sem fólk er búið að vera að kvarta undan, almenningur, í rauninni að lenda á ríkinu. Og ríkið bregst við með því að hlaupa í burtu frá þessu hryllilega fyrirbæri og reyna að greiða þau upp á núll einni, sem fólk hafði alla jafna ekki möguleika á, að vísu áður en lífeyrissjóðir og bankar komu með betri lánskjör og buðu upp á það sem var svo sem heillavænlegt. Svo eru það ákvæðin í þessum bréfum sem bara leyfa það ekki fyrir ríkið. Það einmitt sýnir okkur mjög svo svart á hvítu hversu slæm þessi lán eru fyrir almenning. Kannski verður þetta drifkraftur okkar til þess að laga ekki bara nóg til að afgreiða þetta með sem bestum kostum fyrir almenning heldur líka að tækla loksins verðtrygginguna.