153. löggjafarþing — 23. fundur,  26. okt. 2022.

ÍL-sjóður.

357. mál
[19:01]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Það var nú engri spurningu beint til mín í þessu seinna andsvari en það er rétt hjá hv. þingmanni að það þarf ekki. Hins vegar er þetta auðvitað eilífðarverkefni sem við erum í hérna sem er að reka eitt stykki samfélag. Þetta er verkefni sem aldrei klárast. Það koma alltaf upp einhverjar nýjar og ófyrirséðar áskoranir, ekki bara vegna ákvarðana sem við eða fyrirrennarar okkar hafa tekið heldur vegna ákvarðana sem eru teknar í öðrum löndum eða bara hreinlega vegna þess að heimurinn sem við lifum í og umhverfið okkar hefur á okkur áhrif. Það er nú kannski eitt af því sem gerir þetta starf svo skemmtilegt en líka svo gríðarlega mikilvægt. Þar finnst mér mikilvægt að halda fókusnum á því hvað það er sem við höfum verið valin í að gera með kjöri okkar á Alþingi og það er að vinna að samfélagi.

Ég og við í Vinstri grænum, við erum ekki í neinum vafa um það hvernig samfélagi við viljum stefna að, þar sem er friður, réttlæti, jafnrétti, velferð og náttúruvernd — og að berjast gegn loftslagsbreytingum. Þetta er sýnin sem við viljum fara með inn í öll mál og það gildir líka um þessa skýrslu svo að ég tengi þetta nú við umræðu dagsins. Það er nákvæmlega með þá sömu sýn sem við förum inn í þá vinnu að vinna úr þeirri stöðu sem er komin upp í ÍL-sjóðnum og við þurfum að leysa.